Post #2244093
2026-05-07 17:48 UTC
Ætli maður í gönguferðir í Chile og Argentínu, þá ætti maður fljótlega að rekast á sífelldar aðvaranir vegna Hanta-vírusa; ekki reka nefið inn í kofa, holur eða hella án þess fyrst að lofta vel út. Algengasta smitið er af þurrum nagdýraskít, vírusinn þolir illa sólarljós. Bein smit, t.d. með biti eru aftur sjaldgæf.
Afbrigðið sem nú er í fréttum kalla Patagóníumenn Andes-vírus og virðist vera það eina sem getur smitast beint á milli manna. Það er útbreiddast upp til fjalla og syðst í álfunni.
Replies (1)
-
@sv1@mastodon.social 2026-05-07 17:56
Líklegast þykir að hollenska parið sem lést úr Andes-hantavírusnum hafi smitast á fuglaskoðunarrúnti í Ushuaia, þar sem þau gengu ofan á nýlegri landfyllingu á fyrrverandi öskuhaugum - kjöraðstæðum fyrir rottur og fleira í þeim dúr. En þetta verður mögulega staðfest þegar Argentínska smitrannsóknafólkið kemst á staðinn - þau sem samsæriskenningamaðurinn Milei var ekki búinn að láta reka. 😖