Post #2346551
2026-05-07 17:56 UTC
Líklegast þykir að hollenska parið sem lést úr Andes-hantavírusnum hafi smitast á fuglaskoðunarrúnti í Ushuaia, þar sem þau gengu ofan á nýlegri landfyllingu á fyrrverandi öskuhaugum - kjöraðstæðum fyrir rottur og fleira í þeim dúr.
En þetta verður mögulega staðfest þegar Argentínska smitrannsóknafólkið kemst á staðinn - þau sem samsæriskenningamaðurinn Milei var ekki búinn að láta reka. 😖
Replies (1)
-
@sv1@mastodon.social 2026-05-08 11:48
Núna er komið í héraðsfréttamiðlana þarna suðurfrá að líklegasti sökudólgurinn í þessu máli sé [eins og oft áður] af tegundinni "Oligoryzomys longicaudatus", sem mætti víst þýða sem "Breiðhalamús". En kannski er þarna einhver pólitík á sveimi; Argentínumönnum þætti þessi niðurstaða henta betur, því breiðhalamýs eru algengari í Chile, sem hollensku hjónin heimsóttu jú líka. https://en.wikipedia.org/wiki/Oligoryzomys_longicaudatus